FrontPage
|
Ævintýraleg frásögn um baráttu galdrameistarans Móra við Reglu hinnar heilögu sólar.
Galdrameistarinn fjallar um norsku stelpuna Tirill frá Björgvin og unga íslenska galdrameistarann Móra. Sagan er sjálfstætt framhald af Ísfólkinu og hefst í Noregi og á Íslandi í lok 17. aldar. Lesendur Ísfólksins geta vænst þess að kynnast á nýjan leik þekktum persónum frá Ísfólkinu þar á meðal Marco og Taran.
Fylgstu með frá upphafi í þessum 15 bóka sagnaheimi Margit Sandemo, höfundar Ísfólksins sem er uppfullur af yfirnáttúrulegum frásögnum, sorg/vonbrigðum, ástum og göldrum.
|
Út eru komnar:
Væntanlegar:
Gerist áskrifendur að Ísfólkinu eða Galdrameistaranum
- Áskrifendur fá bókina senda heim til sín.
- Áskrifendur fá 20% afslátt.
- Áskrifendur borga sendingarkostnað.
- Ýmis fríðindi í verslunum Eymundsson. Sjá nánar HÉR
Þeim sem vilja eignast bækurnar án þess að gerast áskrifendur er bent á að kaupa þær á www.jentas.is eða
www.eymundsson.is
|
MARGIT SANDEMO höfundur
Ísfólksins er fædd 23. apríl 1924 i Östre Toten i Noregi. Margit ólst
upp í Svíþjóð en flutti aftur til Noregs á fullorðinsárum. Faðir hennar
var Anders Underdal, stundum kallaður skáldið frá Valdres en hann var
sagður launsonur Nóbelskáldsins Björnstjerne Björnson. Margit skrifar á sænsku og gaf út sína fyrstu bók
árið 1964. Rómantík og spenna ásamt yfirnáttúrulegum öflum
einkenna bækur hennar. Hún hefur skrifað fjöldan allan af sjálfstæðum
skáldsögum en þekktust er hún fyrir alla þá bókaflokka sem
hún hefur látið frá sér fara um ævina. Söguna um
Ísfólkið skrifaði Margit á árunum 1982 til 1988 en alls eru 47
bækur í bókaflokknum og þegar mest var skilaði hún frá sér
bók á sex vikna fresti eða um átta bókum á ári.
Á síðustu árum hefur Margit látið sér nægja að
skrifa eina til fjórar bækur á ári. Í allt hefur Margit skrifað meira
en 170 bækur og er mest seldi rithöfundur Norðurlandanna með meira en
39 milljónir seldra bóka. Þar af hefur Sagan um Ísfólkið selst
í um 25 milljónum eintaka um allan heim.
|